Dansk Suomi Íslenska Norsk Svenska

Ég skora á stjórnvöld á Norðurlöndum að veita þeim vernd sem flýja vargöld og ofbeldi!

DanskEnglishNorskSuomiSvenska

Ímyndaðu þér að þú búir í landi sem hefur verið lagt í rúst vegna vopnaðra átaka. Ímyndaðu þér sprengjuregn og skotárásir, óbreytta borgara týna lífi og heimili brennd til grunna. Þú býrð við stöðuga ógn, ótta, óvissu og hefur hvorki í þig né á.

Ímyndaðu þér að þú leggir á flótta og náir í höfn í ókunnu landi eftir langt og strangt ferðalag. Þú bíður milli vonar og ótta eftir niðurstöðu í máli þínu og er svo sagt að eftir áralanga bið að þú verðir send/ur aftur til heimlands þíns því þú sért bara að flýja almenna vargöld og ofbeldi.

Þetta er ótrúlegt en er þó veruleiki þúsunda hælisleitenda á hverju ári.

Í dag eru um það bil fjörtíu milljónir manna á vergangi víðsvegar um heiminn. Þetta er fleira fólk en býr á öllum Norðurlöndum til samans og fimmtán milljónum betur. Af öllum þessum milljónum manna leita aðeins um þrjátíu þúsund árlega hælis á Norðurlöndunum. Oft þarf fólk að bíða árum saman eftir ákvörðun stjórnvalda. Slík bið er mörkuð ótta og óvissu um framtíðina. Alltof oft er fólk síðan sent nauðugt aftur til landa þar sem þess bíða stríðsátök og ofbeldi, í trássi við tilmæli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Ég krefst þess að norræn stjórnvöld komi mannúðlega fram við fólk sem leitar verndar á Norðurlöndum vegna vopnaðra átaka og vargaldar í heimalöndum sínum!

Ég krefst þess að stjórnvöld á Norðurlöndum fari að viðmiðunarreglum og tilmælum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna við meðferð hælisumsókna.

 

 

7318

hafa þegar skrifað undir

See the list